Nokia Fun Camera - Umhirða og viðhald

background image

Umhirða og viðhald

Í myndavélinni fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega með.
Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að uppfylla skilmála ábyrgðarinnar og geta stuðlað
að betri endingu.

Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið steinefni sem
tæra rafrásirnar. Ef tækið blotnar skal fjarlægja rafhlöðurnar og leyfa því að þorna alveg
áður en skipt er um þær.

Ekki má nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né geyma það þar. Færanlegu
hlutirnir í því geta skemmst.

Ekki skal láta tækið standa þar sem sólin skín beint á það eða önnur björt ljós. Innri hlutir
þess eða skjárinn geta skemmst.

Ekki má geyma myndavélina á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu
rafeindatækja, skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.

Ekki má geyma myndavélina á köldum stað. Þegar tækið hitnar aftur upp í eðlilegt
hitastig getur raki myndast innan í því og hann getur skemmt rafrásaspjöld.

Ekki skal reyna að opna tækið nema eins og mælt er fyrir um í þessari handbók.

Tækinu má ekki henda, ekki má banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð getur
skemmt innri rafrásaspjöld og fíngerðan búnað.

Ekki má nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess að þrífa
tækið.

Ekki má mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og komið í veg fyrir
að þeir vinni rétt.

Nota skal mjúkan, hreinan, þurran klút til að hreinsa linsur.

Ef tækið vinnur ekki eins og til er ætlast skal fara með það til næsta viðurkennda söluaðila og
láta athuga það. Eingöngu þjálfað starfsfólk má setja upp þetta tæki eða gera við það.

background image

Copyright

©

2003 Nokia. All rights reserved.

16